 |
BUILDING BRIDGES
www.building-bridges.is
About the Project |
 |
Um verkefnið:
Building Bridges verkefnið er alþjóðlegt verkefni með samstarfsaðilum frá
Danmörk, Þýskalandi, Ítalíu, Tékklandi, Slóvakíu og Íslandi. Samstarfsaðilarnir
hafa mismunandi en dýrmæta þekkingu og reynslu sem þeir munu miðla til verkefnisins
(háskólar, námsráðgjafar, jafnréttisfulltrúar, grasrótasamtök kvenna o.fl.)
Megin markmið verkefnisins er að virkja og
hvetja konur í landbúnaði enn frekar í því sem þær vilja taka sér fyrir hendur
og styrkja þær þannig persónulega, félagslega og samfélagslega. Ná
fram jafnrétti innan landbúnaðargeirans og koma í veg fyrir flótta ungra
kvenna úr greininni.
Miðað við vinnulýsingu verkefnisins í umsókn er því skipt í eftirfarandi
vinnuþætti:
- Virkja og hvetja duglegar og áhugasamar konur í landbúnaði
til að gerast leiðbeinendur/lykilkonur fyrir aðrar konur innan landbúnaðarins.
- Þær munu fá leiðsögn í því meðal annars;
- Hvernig kveikja megi áhuga á sjálfsnámi og sjálfsstyrkingu
- Hvernig eigi að undirbúa og skipuleggja fundi
- Hvernig megi byggja upp tengslanet og halda stöðugum samskiptum
- Hvernig megi hvetja einstaklinga til þátttöku í starfi
innan landbúnaðarins eða til frekari menntunar og sjálfsstyrkingar.
- Gefin verður út handbók fyrir leiðbeinendur á viðkomandi
tungumáli. Hún verður einnig aðgengileg á vefnum.
- Kannað verður með hvaða hætti er hægt að styrkja og styðja
konur til frekari dáða innan landbúnaðarins og útbúnir 6-8 námspakkar
út frá því.
- Þeir þættir sem hafa verið nefndir eru eftirfarandi (efnisvalið
fer þó fyrst og fremst eftir niðurstöðu könnunar sem verður gerð
í öllum löndunum í upphafi):
- Hvernig nýta má bújörðina sem fræðslueiningu fyrir menntakerfið
- Hvernig hægt er að standa að markaðssetningu afurða í gegnum
vefsíðu
- Hvernig hægt er að komast áfram til valda innan landbúnaðarkerfisins
eða fyrir önnur málefni
- Hvernig greina megi áhuga, hæfileika og möguleika viðkomandi
og út frá því þróa nýja atvinnu- og/eða tekjumöguleika.
- Þessir námspakkar verða þróaðir í mismunandi löndum allt eftir
þörfum viðkomandi lands. Allt námsefnið verður svo þýtt og gert
aðgengilegt leiðbeinendunum.
- Hanna og aðlaga vefsíðugrunn sem inniheldur einfalda og aðgengilega möguleika
á virku tengslaneti; samskipti, samstarf o.fl. Námspakkar verða þar aðgengilegir
ásamt leiðbeinendahandbók. Þar verða notuð mismunandi tól til náms og verkefnavinnu.
Hægt verður að vinna í minni og stærri hópum; svæðisbundnum, verkefnabundnum
eða á landsvísu. Lagðar verða fyrir kannanir um árangur og reynslu af verkefninu.
Kynning á árangri (uppfært reglulega).
Verkefnið er styrkt af Leonardo áætlun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
|
|