|
Project Partners:
Agricultural University of Iceland Iceland (Project Leader) [Website]
Ceska Zemedalska Univerzita Czech Republic [Website]
ed-lab GmbH Germany [Website]
ed-consult Denmark [Website]
Bændasamtök Íslands Iceland [Website]
Lifandi Landbúna∂ur Iceland [Website]
Firenze Tecnologia Italia [Website]
VOKA Slovak Republic [Website]
|
Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) tók til starfa 1. janúar 2005 við sameiningu
Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri, Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Garðyrkjuskóla
ríkisins. Við skólann eru starfandi um 130 starfsmenn og nema við skólann
300 nemendur auk þess sækja um 800-1000 manns endurmenntun á hans vegum á
hverju ári.
Skólinn er vísindaleg fræðslu- og rannsóknasofnun á háskólastigi auk þess
sem þar er biðið uppá starfsmenntanám í búfræði og garðyrkjutengdum greinum
auk endurmenntunar. Þrjár deildir eru við skólann: Auðlindadeild, Umhverfisdeild
og Starfs-
og endurmenntunardeild.
Eftirfarandi námsleiðir eru við skólann
- Háskólanám : Nám til BS prófs á fjórum námsbrautum:
búvísindum, náttúru- og umhverfisfræði, skógfræði/landgræðslu og umhverfisskipulagi
(fornám að landslagsarkítektúr). Einnig er boðið upp á mastersnám og doktorsnám.
- Starfsmenntanám : Fimm námsleiðir eru á framhaldsskólastigi:
Blómaskreytingar, búfræði, garðyrkjuframleiðsla, skógur/umhverfi og skrúðgarðyrkja.
Fjarnám : Á fimm starfsmenntabrautum LBHÍ er boðið upp á
fjarnám: búfræðibraut, garð- og skógarplöntubraut, skógræktarbraut, umhverfisfræðibraut
og ylræktarbraut.
- Endurmenntun : Auk þessa starfrækir skólinn
endurmenntunardeild þar sem boðið er upp á fjölda námskeiða árlega.
Aðalaðsetur Landbúnaðarháskólans er á Hvanneyri í Borgarfirði en skólinn
er einnig með starfsemi á eftirtöldum stöðum: Keldnaholti í Reykjavík, Reykjum
í Ölfusi, Möðruvöllum í Hörgárdal, Hesti í Borgarfirði og Stóra - Ármóti í
Árnessýslu. Ennig er skólinn þátttakandi í Efnagreiningum á Keldnaholti
og Matvælarannsóknum Keldnaholti. |